helgisaemundur.bloggar.is
Hoj!Helgi Sćmundur Guđmundsson
Þetta er kósí. Fyrir utan aaaðeins of margt. Samt kósí alveg. Þarf ekki að hafa áhyggjur af því að sofa yfir mig í skólann.. Jei.Ég fór á Sauðárkrók um helgina og hápunktur ferðarinnar var sá að mér áskotnaðist diskur sem systkin nokkur þar í bæ bjuggu til handa mér. Á honum er margt gott og gaman. Ég keyrði útí b.s.í áðan að fá mér pizzusneið og festist þar í disknum eins og áður hefur gerst. Nokkrum sinnum í dag. Mikið gott.
Meðal annars sem ég kynntist á þessum disk er dúóið Ratatat.
Ratatat er gott. Það er instrumental músík, bland af elektró, hiphopi og rokki. Hana vinna þeir félagar Mike Stroud og Evan Mast frá New York.
Það sem var á disknum sem ég eignaðist var þeirra nýjasta plata "Classics" sem kom út þann 22. ágúst 2006 og eru mín uppáhaldslög af honum eins og er "Wildcat" og "Loud Pipes". Lagið "Loud Pipes" hefur meðal annars hljómar í auglýsingum í útvarpinu auk þess útvarpsstöðin XFM spilar slatta með þeim.
Þeir hafa verið að túra með hljómsveitum eins og The Killers og Franz Ferdinand.
http://www.albinoblacksheep.com/flash/ratatat.php
Þetta er alveg mjög gott sjett fyrir þá sem vilja hlusta á e-ð án þess að þurfa í rauninni að vera að spá ooof mikið. Mjög gott við ýmsar kringumstæður. Sérstaklega undir stýri.
En Jæja fólk ég ætla nú ekki að hafa þetta mikið lengra. Ég er alveg að drukkna í stórum verkefnum í skólanum en þegar það klárast ætla ég að hella mér í það að fara að skrifa meira um hljómsveitir.
Tjékkið á Blue Öyster Cult og það er meira á leiðinni.
Helgz.
Halló halló.Helgi Sćmundur Guđmundsson
Ég vildi bara segja fólki að fylgjast með "Rokk og ról.. fyrir nörda" dálknum hér til vinstri. Ég skrifaði upp sögu Blue Öyster Cult í nótt og á eftir að gera slíkt hið sama um fleiri bönd sem ég held upp á. Auk þess sem þar verða ýmsar tónlistarpælingar, topp 30 listi og e-ð fleira í svipuðum dúr. Tjékkit át.Hć aftur..Helgi Sćmundur Guđmundsson
Hér sit ég enn, einn á Sóleyjargötunni. Ég er búinn að hlusta mikið á tónlist síðustu daga. Nýrri tónlist og hún kemur enn á óvart. Ég hef verið að missa af svo miklu að mig svimar bara. Sveiattan.Nú fer skólinn að syngja sitt síðasta og ég get ekki neitað því að ég hlakki örlítið til að koma aftur í heimabæinn minn í fríinu. Sofa fram að hádegi, taka rúnt, fara í lúguna, rúnta, fara heim. Og það skrýtnasta við þetta fara heim er að það tekur engar 20min. Ónei kalli minn. Það tekur engar 20min.
Ég hef verið að skoða nokkur Q blöð í skólanum fyrir lokaverkefni mitt í HLT sem var útvarpsþáttur og rakst á eina helvíti fyndna grein sem ber titilinn
"The Funniest Touring Stories" en eins og flestir enskumælandi lesendur mínir hér hafa þegar áttað sig á eru þetta fyndnar ferðasögur. En þetta eru engar venjulegar ferðasögur, ónei. Þetta er "fyndnustu-hljómsveitir-á-tónleikaferðalagi" sögurnar. Ég mun án efa stela þessu blaði úr skólanum og koma og skrifa þær reglulega. Kannski bara hafa svona tengil hérna til vinstri.
Annars hef ég heyrt að bloggsíðan mín sé með eindæmum ljót og ekkert annað. Fékk ekkert komment á skrifin mín, bara það að síðan væri ljót. Maður veit náttúrulega ekki hver maður á að snúa sér í svona stöðu. Hvernig mynduð þið bregðast við?
Talandi um það hvernig mynduð þið bregðast við. Ég ætla að setja einhverja glettna könnun á þessa síðu. Hún verður án efa hægra megin á síðunni. Það er kúltaðast.
They're gonna clean up your looks
with all the lies in the books
and make a citizen out of you
Because they sleep with a gun
and keep an eye on you son
so they can watch all the things
that you do
Mér leiðist. Entertainmet Tonight er whack shit. Samt er það alltaf í sjónvarpinu þegar ég kveiki á því. Bókstaflega alltaf. Ég ætla að halda dagbók um það hvenær það er í sjónvarpinu. Afhverju?
Ég er að heyra mikið um Alaska Pipeline þessa dagana. Það er komið á hreint hver fann það upp en getur einhver sagt mér afhverju svona er enn til í dag?
Hć.Helgi Sćmundur Guđmundsson
Sæl veriði og margblessuð.
Velkomin hingað á mína þriðju bloggsíðu sem vonandi gengur lengur en í mánuð. Eins og slóðin gefur til kynna er nafn mitt Helgi Sæmundur og er ég yndisfagur fýr og gullpenni þó ég segi sjálfur frá.
Undirritaður er mikill Sauðkrækingur en hefur búið í henni litlu Reykjavík um nokkurt skeið nú. Undirritaður stundar nám við Flensborgarskóla í Hafnafirði og mætir stundum til vinnu hjá póstinum við útkeyrslu. Undirritaður er mikið á kafi í tónlist og vonandi nennir undirritaður og skrifa einhverjar greinar um bönd þau er vekja hjá honum kátínu.
Hingað munu koma margar myndir af undirrituðum fáklæddum og í annarlegum stellingum sem og svæsnar greinar um líf hans í borginni. Við getum tekið líðandi stund sem dæmi.
"Hér sit ég einn í Sóleyjargötunni. Nú er ekki kátt í koti því enginn er maturinn og minna af félagsskapnum. Ég ætti að vera staddur annarsstaðar en vegna húðleti og þreytu hef ég ekki komið mér þennan stað B. Mig vantar gítarinn minn og mig klæjar í puttana. Mig vantar líka e-ð til að horfa á. Ég ætti kannski að vera að læra en það einhvernveginn er ekki inn í myndinni, eins heimskulegt og það nú er. Mig vantar e-ð til að hlusta á. Það gæti útskýrt ástand mitt."
Eins og þið sjáið eru þessar greinar kryddaðar ósmekklegum lýsingum og eru alls ekki fyrir alla.
Ég er fokking batteríslaus og það er einhver manni í næsta herbergi að láta símann sinn hringja á fullu. Ég öfunda hann. Ég nefnilega gerði þau fáránlegu mistök á föstudag að taka með mér bæði hleðslutækin mín svo ég myndi nú örugglega ekki gleyma öðru eða e-ð og yrði batteríslaus fyrir norðan en nei. Svo gleymi ég þeim báðum á Sauðárkróki sem er auðvitað ekki gott. Nú hef ég ekkert batterí.
Ég er svo fokking batteríslaus. Líkamlega líka.
Það er mikið að skoða í nýjum heimi eins og maðurinn sagði og það má svo sannarlega segja um mig og þá tónlist sem ég hlusta á núna. Menn brosa kannski einhverjir yfir því að nú er ég algjör nýliði hvað varðar Death Cab For Cutie, Mars Volta, Bloc Party, Wolf Parade, Arctic Fire og Kaiser Chiefs og fleiri en það er í rauninni bara skemmtilegra því allt sem ég heyri er nýtt og ferskt í mínum eyrum. Ég ætla að taka saman smá lista yfir mín uppáhaldslög þessa stundina:
U2 & Green Day - The Saints Are Coming
Razorlight - America
Band Of Horses - Funeral
Death Cab - Follow You Into The Dark
Muse - Knight of Cydonia
Muse - Starlight
Muse - Bliss
Pétur Ben - Something Radical
Audioslave - Doesn't Remind Me
Neil Young - Rockin In The Freeworld
My Chemical Romance - Mama
Bob Dylan - Blowin In The Wind
Lynyrd Skynyrd - Freebird
Jæja þá er fyrsta blogginu komið frá og núna hefst maður handa við að reyna að troða einhverjum linkum þarna inn. Skil reyndar voðavoða lítið í þessu .bloggar.is en þetta ætti allt að fara að skýrast.
www.myspace.com/helgisaemundurg
Takk